Hvolsvöllur, Hallgerðartún - NÝTT

Um íbúðirnar

Íbúðirnar eru 92,2 og 93,6 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og alrými með eldhúsi. Fataskápur (3 skápar) í hjónaherbergi en ekki eru fataskápar í öðrum herbergjum.  Í íbúðunum er þvottahús/geymsla þar sem hægt er að ganga beint út í garðinn að norðanverðu. Geymsluskápar eru í þvottahúsi og þá eru einnig skápar í anddyri. 

360° myndir

Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri 4ra herbergja endaíbúð (93,6 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri 4ra herbergja íbúð (miðjuíbúð) (92,2 m²).

Myndbönd

Hér má sjá myndband úr sambærilegri endaíbúð (93,6 m²).

Hér má sjá myndband úr sambærilegri miðjuíbúð (92,2 m²).

Skipulag

Myndir hér fyrir neðan af útliti hússins, athygli er þó vakin á að hjólageymsla er ekki rétt á myndum en bent er á aðaluppdrætti sem sýna rétt útlit íbúða og útisvæðis.

Hvers vegna gott er að búa á Hvolsvelli

Rangárþing eystra er Heilsueflandi samfélag, meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa.