Úthlutun geta þeir einir hlotið sem hafa verið virkir á og fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB  í a.m.k. 16 mánuð, sl. 24 mánuði, miðað við úthlutun.

Skráningum á biðlista er raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla félagsgjalds hefur verið innt af hendi. Undantekning á uppröðun var þó í upphafi þannig að skráningar til og með 31. júlí 2018 fóru í pott og var umsækjendum raðað í númeraröð með útdrætti. Við úthlutun ræður lægsta númer á biðlista að teknu tilliti til forgangs, sbr. gr. 4 í úthlutunarreglum Bjargs. 

Í lögunum eru skilgreind tekju-og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu, í dag eru þau eftirfarandi:

8.327.000 kr. ári, fyrir skatta (eða 693.917 kr. á mánuði) fyrir hvern einstakling.
11.659.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 971.583 kr. á mánuði) fyrir hjón og sambúðarfólk.
2.082.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 173.500 kr. á mánuði) fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu..

Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Greiðslubyrði leigu skal að jafnaði ekki vera umfram 25%-30% af heildartekjum leigutaka að teknu tilliti til húsnæðisbóta, barnabóta og meðlags.

Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsóknar sendir Bjarg póst á alla á biðlista með nánari upplýsingum. Ef áhugi er á tiltekinni staðsetningu þarf umsækjandi að senda inn umsókn.