Úthlutun geta þeir einir hlotið sem hafa verið virkir á vinnumarkaði og fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuð, sl. 24 mánuði miðað við úthlutun.

Í lögunum eru skilgreind tekju-og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu, í dag eru þau eftirfarandi:

8.327.000 kr. ári, fyrir skatta (eða 693.917 kr. á mánuði) fyrir hvern einstakling.
11.659.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 971.583 kr. á mánuði) fyrir hjón og sambúðarfólk.
2.082.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 173.500 kr. á mánuði) fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu.

Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Greiðslubyrði leigu skal að jafnaði ekki vera umfram 25%-30% af heildartekjum leigutaka að teknu tilliti til húsnæðisbóta, barnabóta og meðlags.

Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára við skráningu á biðlista.

Til að geta sótt um íbúð þarf umsækjandi að vera með staðfesta skráningu á biðlista hjá Bjargi.

Að jafnaði er 80% íbúða úthlutað til félagsmanna ASÍ og 20% til félagsmanna BSRB.

Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsóknar sendir Bjarg póst á alla á biðlista með nánari upplýsingum. Ef áhugi er á tiltekinni staðsetningu þarf umsækjandi að senda inn umsókn.