Dalsbraut, Reykjanesbær

Laus 4ra herbergja íbúð (íbúð 302)

4ra herbergja íbúð er laus í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ., upphaf leigu 15. okóber 2024

Íbúðin er 83,6 fm og er á 3. hæð í þessu þriggja hæða lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Svalir í suður.

Geymsla í sameign, stærð 3 m². Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð.

Leiguverð er kr. 261.818  á mánuði, tengt vístölu neysluverðs mánaðarlega með grunn í ágúst 2024. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.

Leigutaki greiðir auk þess sína eigin rafmagnsnotkun (af rafmagnsmæli íbúðar) hita, og eftir atvikum sameiginlega rekstrarkostnað raðhússins, í hlutfalli við stærð íbúðar ( hlutir eins og þrif og umhirðahirða sameignar, þ.m.t. garðhirða og snjómokstur).

Færa mig á umsóknarsíðu

Skipulag

  • 18 íbúðir við Dalsbraut 1, Inni Njarðvík, 260 Reykjanesbær, fjórar 3ja herbergja, tólf 4ra herbergja og tvær 5 herbergja íbúðir. Íbúðirnar fóru í leigu 1. febrúar og 1. mars 2024.

Til að átta sig betur á íbúðunum er hér hlekkur á sambærilegt hús (Dalsbraut 2): https://www.dalsbraut.is/ Vakin er athygli á að íbúðr Bjargs eru ekki leigðar með húsgögnum.

Myndbönd úr íbúðum:

Myndband úr 3ja herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ

Myndband úr 4ra herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ

Myndband úr 5 herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ

360°myndir

360 mynd úr 4ra herbergja íbúð Dalsbraut 1, Reykanesbæ

Um Dalsbraut 1

Um er að ræða 27 íbúða, 3ja hæða fjölbýlishús á þremur hæðum. Húsið er með tveimur lyftum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Kvarts steinn á borðum bæði í eldhúsi og baðherbergi. Bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Suður og suðvestur svalir. Húsið stendur nálægt sjávarsíðunni og er glæsilegt sjávarútsýni af eftir hæðum. Öllum íbúðum fylgir sér geymsla og í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageysmsla.

Íbúðirnar í Dalsbraut voru keyptar og ætlaðar fyrir Grindvíkinga í takt við viljayfirlýsingu sem undirrituð var við stjórnvöld vegna hamfaranna á Reykjanesi.

Úthlutanir hjá Bjargi í tengslum við íbúðir keyptar fyrir íbúa Grindavíkur eru út frá eftirfarandi:

a) póstnúmeri 240

b) biðlistanúmeri

c) fjölskyldustærð

d) Uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þau má finna hér: https://www.bjargibudafelag.is/leiga/skilyrdi-fyrir-uthlutun/

Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda sem er undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. er eiganda íbúðarinnar heimilt að leigja hana til leigjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.

Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda frá Grindavík (aðila á lista Almannavarna vegna rýmingar í Grindavík) er heimilt að úthluta út frá almennum skilyrðum Bjargs varðandi úhlutun.  Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til 18 mánaða.

Fyrir leigutaka í Dalsbraut 1