Bjarg er leigufélag án hagnaðarsjónarmiða.

Það þýðir að íbúðir eru leigðar á kostnaðarverði og leigufjárhæð því ákveðin þannig að rekstur íbúðanna sé sjálfbær, þ.e. að leigusali geti staðið í skilum á þeim greiðslum sem honum ber að greiða á samkvæmt lögum.

Tekjur umsækjenda/leigutaka stýra því ekki leiguverði.

Leiguverð eru mismunandi milli staða þar sem kostnaður verkefna er ólíkur.

Tenging við vísitölu: Mánaðarleiga á Bjargi er verðtryggð. Það þýðir að grunnleiga breytist mánaðarlega í hlutfalli við breytingar á almennu verði á Íslandi. Til að mæla verðbreytinguna er notuð vísitala neysluverðs. Það er vísitala til að mæla almennt verðlag í hagkerfinu. Vísitalan er gefin út af Hagstofu Íslands. Vísitalan mælir verðbreytingar á tiltekinni vöru- og þjónustukörfu sem er grunnur vísitölunnar. Verð á umfangsmiklu úrtaki vöru og þjónustu er safnað í viku um miðjan mánuð til að mæla verðbreytingar. Karfan endurspeglar meðalútgjöld heimilanna, t.d. á matvælum, þjónustu, bensíni og húsnæði. Verðhækkunin er kölluð verðbólga. Þetta þýðir að leigan hækkar með verðbólgu að nafnvirði.

Ef leiguverð í samningnum þínum er t.d. 190.000 og vísitala neysluverðs í samningi er 658,2 (jan'26) þá er útreikningur á leiguverði í febrúar 2026 eftirfarandi:

= 190.000 x (665,8/658,2) = 192.194 (leiga fyrir febrúar 2026)

Verðvísitala í febrúar 2026 er 665,8: Helstu vísitölur - Hagstofa Íslands