Uppsögn á sér stað á mínum síðum á vefsíðu Bjargs.

Við uppsögn á leigu fær leigutaki afhentan gátlista í tengslum við skil og heimsókn frá starfsmanni Bjargs þar sem nánar er farið yfir hvað þarf að gera fyrir skil. Einnig er hægt að nálgast listann hér.

Hér má finna efnis- og tækjalista fyrir allar staðsetningar Bjargs.

Samningstími og uppsögn: 
Uppsagnarfrestur er sex mánuðir. Við uppsögn getur leigutaki óskað eftir því að losna fyrr og er íbúðin þá auglýst laus samkvæmt óskum hans. Leigutaki er samt sem áður ábyrgur fyrir greiðslu leigu á uppsagnartíma ef ekki tekst að leigja íbúðina. 

Leigulok: 
Við lok leigutímans skal leigutaki skila íbúðinni í sama ástandi, þ.e. vandlega þrifinni, fjarlægja nagla, festingar, veggfóður, viðbætur við innréttingar sem leigusali samþykkir ekki að megi standa og gera við skemmdir. Bjarg tekur að sér málun við skil að því marki sem um er að ræða venjulegt viðhald. Ef málað hefur verið í lit, t.d. mjög dökkur litur, lakkáferð, kalk áferð, settar upp flísar eða veggfóður, sem kallar á aukna vinnu við að koma íbúð í upprunalegt horf ber leigutaki kostnað vegna þess. Ef gólfefni eru slitin umfram það sem eðlilegt má teljast kann það að vera álitið sem tjón á íbúð sem leigutaki gæti þurft að bæta í samræmi við hsll. 
Ef allt er í lagi við skilin og engar athugasemdir gerðar þá er enginn kostnaður við skilin. Hins vegar ef eitthvað þarf að laga getur heildarkostnaður verið töluverður og er breytilegur allt eftir ástandi og umgengni, en samkvæmt lögum ber leigutaki óskerta ábyrgð á allri rýrnun húsnæðis. Sé rýrnun á húsnæðinu umfram það sem eðlilegt þykir og hið leigða verði ekki hæft til útleigu skal leigutaki enn fremur greiða leigu fyrir þann tíma sem tekur að koma húsnæðinu í viðeigandi og leiguhæft ástand.  

Úttektir og formleg skil:
Forúttekt og lokaúttekt eiga sér stað fyrir formlegu skilin. 
Hver úttekt tekur um 15-20 mínútur. Þessar tvær úttektir eru hugsaðar fyrir leigutaka svo allt gangi vel í formlegu skilunum, þ.e. að ekki komi upp athugasemdir þá. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að leigutaki lendi í óþarfa kostnaði. Leigutaki þarf sjálfur að mæta í úttektir og formleg skil. Ef leigutaki kemst ekki sjálfur þarf að skrifa undir umboð, sem Bjarg útvegar og heimilar öðrum að mæta fyrir hans hönd.

Við formleg skil, skilar leigutaki íbúð og öllum lyklum formlega af sér. Gjald og umsýslugjald er tekið fyrir lykla sem vantar við formleg skil. Athugaðu að skv. húsaleigulögum skal leigjandi hafa lokið rýmingu og frágangi hins leigða eigi síðar en kl. 13.00 næsta dag eftir að uppsagnarfresti lauk.

Úttekt fer fram við skil húsnæðis og er undirrituð af báðum aðilum. Úttektirnar eru til grundvallar ef ágreiningur verður um ástand íbúðar við skil. Sætti annar aðilinn sig ekki við slíka úttekt getur hann óskað eftir úttekt óháðs úttektaraðila og skiptist kostnaðurinn við úttektina þá að jöfnu milli þeirra.

Ef leigutaki vill, getur hann fengið tilboð frá ræstingaraðila í flutningsþrif. Hægt er að skoða það við úttekt.