5 hæða fjölbýlishús við Keilisholt 1, 190 Vogum (Reykjanes).
Íbúðirnar í Keilisholti voru keyptar og ætlaðar fyrir Grindvíkinga í takt við viljayfirlýsingu sem undirrituð var við stjórnvöld vegna hamfaranna á Reykjanesi.
Um er að ræða 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir.
Hér má sjá Keilisholt 1, Vogum á korti.
Upphaf leigu er 1. desember 2025.
Íbúðin er 110,0 m² og er á 3. hæð hæð. Svalir í austur.
Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús. Geymsla á jarðhæð og sameiginleg vagna- og hjólageymsla er einnig á jarðhæð.
Áætlað leiguverð á mánuði er kr. 306.330, tengt vísitölu neysluverðs mánaðarlega, með grunn í nóvember 2025. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Leigutaki greiðir sína eigin rafmagnsnotkun (af rafmagnsmæli íbúðar) hita, og eftir atvikum sameiginlega rekstrarkostnað hússins (hlutir eins og þrif og umhirðahirða sameignar, þ.m.t. garðhirða og snjómokstur).
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem er með lögheimili í Grindavík, hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.686.000/12.161.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.172.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.386.000kr.
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda sem er undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. er eiganda íbúðarinnar heimilt að leigja hana til leigjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda frá Grindavík (aðila á lista Almannavarna vegna rýmingar í Grindavík) er heimilt að úthluta út frá almennum skilyrðum Bjargs varðandi úhlutun. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til 18 mánaða.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs.
Úthlutanir hjá Bjargi í tengslum við íbúðir keyptar fyrir íbúa Grindavíkur eru út frá eftirfarandi:
a) póstnúmeri 240
b) biðlistanúmeri
c) fjölskyldustærð
d) Uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þau má finna hér: https://www.bjargibudafelag.is/leiga/skilyrdi-fyrir-uthlutun/
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda sem er undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. er eiganda íbúðarinnar heimilt að leigja hana til leigjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda frá Grindavík (aðila á lista Almannavarna vegna rýmingar í Grindavík) er heimilt að úthluta út frá almennum skilyrðum Bjargs varðandi úhlutun. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til 18 mánaða.
Innréttingar í öllum íbúðum eru HTH innréttingar frá Ormsson. Rafmagnstæki eru af gerðinni AEG. Eldhús skilast með ísskáp, uppþvottavél og eldunarofni og helluborði. Gólfefni á íbúðum eru vandað harðparket ásamt hljóðdúk, en flísar eru á gólfi í votrýmum.
Gæludýr eru leyfð í hluta íbúðanna og merkja þarf sérstaklega við í umsókn ef sótt er um íbúð sem heimilar gæludýrahald. Íbúðir Bjargs eru ekki leigðar með húsgögnum.
Smelltu hér til að skoða síðu Keilisholts
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að hafa átt sér stað á framkvæmdatíma.
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst