Suðurnesjabær (Sandgerði), Bárusker 1 - NÝTT

2ja herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 54,0-54,1 m²
  • Fjöldi íbúða: 5

Tveggja herbergja íbúðirnar eru 54,0-54,1 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í sameign (1,42 m²), forstofuskápur í anddyri og  fataskápur í svefnherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.

Hér má sjá myndband tekið úr svipaðri 2ja herbergja íbúð í Grindavík 

Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 2ja herbergja íbúð í Grindavík 

3ja herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 69,7 m² - 71,9
  • Fjöldi íbúða: 4

Þriggja herbergja íbúðirnar eru 69,7 m² - 71,9 m² . Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.

Hér má sjá myndband tekið úr svipaðri 3ja herbergja íbúð í Grindavík 

Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 3ja herbergja íbúð í Grindavík 

4ra herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 91,9 m²
  • Fjöldi íbúða: 2

Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 91,9 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.

Hér má sjá myndband tekið úr sambærilegri 4ra herbergja íbúð í Grindavík

Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri 4ra herbergja íbúð í Grindavík.

Um er að ræða nýtt íbúðahverfi, Skerjahverfi í Sandgerði í Suðurnesjabæ. Í deiliskipulagi Skerjahverfis er gert ráð fyrir blandaðri byggð einbýla, rað-og parhúsa og fjölbýlishúsa.