22 íbúðir eru við Maríugötu 5 í Garðabæ (Urriðaholt í Garðabæ).
Íbúðirnar eru í einu húsi sem er fimm hæðir. Um er að ræða 2ja - 5 herbergja íbúðir. Íbúðirnar voru tilbúnar 1. mars 2023. Gæludýrahald er heimilt í hluta íbúða á jarðhæðum en sækja þarf um þær íbúðir sérstaklega. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Bílstæði við húsið eru 32, þ.e. 1,45 pr. íbúð.
Hér má sjá hvar Maríugata 5 er á korti.
Tveggja herbergja íbúðirnar eru frá 52,2-53,1 m². Íbúðirnar skiptast í alrými með eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar. Fataskápur er í svefnherbergi.
Hér má sjá myndband tekið í Maríugötu 5 (nr. 103, 53,1 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr í Maríugötu 5 (nr. 103, 53,1 m²)
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 96,7-96,8 m². Um er að ræða þrjú svefnherbergi, stofu/eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar. Fataskápur er í hjónaherbergi. Geymsla/búr er í eldhúsi.
Hér má sjá myndband tekið í Maríugötu 5 (nr. 101, 96,8 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar í Maríugötu 5 (nr. 101, 96,8 m²)
Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortnar náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir. Sjá nánar um Urriðaholt: www.urridaholt.is.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að hafa átt sér stað á framkvæmdatíma.
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst