Fjórar íbúðir í raðhúsi á einni hæð að Hallgerðartúni 69-75.
Um er að ræða sérbýli með litlum garði og allar íbúðir með tveimur bílastæðum. Íbúðirnar eru 4ra herbergja (3 svefnherbergi) og voru tilbúnar í apríl 2024.
- Pallur með skjólvegg á milli íbúða.
- Við hverja íbúð er óupphituð útigeymsla
- Bakatil er innangengt í þvottahús/geymslurými.
- Tvö bílastæði eru á hverja íbúð.
Gæludýrahald er heimilt í íbúðunum. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Hér má sjá staðsetningu íbúðanna.
Íbúðirnar eru 92,2 og 93,6 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og alrými með eldhúsi. Fataskápur (3 skápar) í hjónaherbergi en ekki eru fataskápar í öðrum herbergjum. Í íbúðunum er þvottahús/geymsla þar sem hægt er að ganga beint út í garðinn að norðanverðu. Geymsluskápar eru í þvottahúsi og þá eru einnig skápar í anddyri.
Myndbönd
Hér má sjá myndband úr sambærilegri endaíbúð (93,6 m²)
Hér má sjá myndband úr sambærilegri miðjuíbúð (92,2 m²)
360° myndir
Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri endaíbúð (93,6 m²)
Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri miðjuíbúð (92,2 m²)
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að hafa átt sér stað á framkvæmdatíma.
Myndir hér fyrir neðan af útliti hússins, athygli er þó vakin á að hjólageymsla er ekki rétt á myndum en bent er á aðaluppdrætti sem sýna rétt útlit íbúða og útisvæðis.
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst