Sex 4ra herbergja íbúðir í raðhúsi á einni hæð að Lyngholti 42-52, 640 Húsavík.
Um er að ræða sérbýli með litlum garði og allar íbúðir með tveimur bílastæðum. Allar íbúðirnar eru 4ra herbergja (3 svefnherbergi). Fyrsta skóflustunga var tekin í október 2024. Íbúðirnar voru tilbúnar í apríl 2025.
Hér má sjá staðsetningu íbúðanna.
Upphaf leigu er 15. mars 2027.
Íbúðin er 95,7 m² og er endaíbúð í raðhúsi á einni hæð.
Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Gæludýrahald er heimilt í íbúðinni. Hámark er eitt gæludýr. Hér má sjá reglur um gæludýrahald í íbúðum Bjargs í heild sinni.
Áætlað leiguverð er kr. 281.692 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs mánaðarlega, með grunn í nóvember 2026. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 16.349 á mánuði.
Hér má sjá myndband úr endaíbúð í Lyngholti (95,7 m²)
Hér má sjá 360° myndir úr endaíbúð í Lyngholti (95,7 m²)
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 9.138.000/13.500.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.254.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.874.000 kr.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs.
Íbúðirnar eru 94,9 og 95,7m².
Íbúðirnar skiptast í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Myndbönd
Hér má sjá myndband úr miðjuíbúð í Lyngholti (94,9 m²)
Hér má sjá myndband úr endaíbúð í Lyngholti (95,7 m²)
360° myndir
Hér má sjá 360° myndir úr miðjuíbúð í Lyngholti (94,9 m²)
Hér má sjá 360° myndir úr endaíbúð í Lyngholti (95,7 m²)
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að hafa átt sér stað á framkvæmdatíma.
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst