Hraunbær 153-163 í Reykjavík

Laus 3ja herbergja íbúð

3ja herbergja íbúð er laus til leigu í Hraunbæ 157 í Árbæ (110 Reykjavík). Laus 15. febrúar 2025

Íbúðin er 67,1 m² og er á 4. hæð í lyftuhúsi, endaíbúð og svalir í suður. Gæludýr er ekki heimilað í íbúðinni. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í hjónaherbergi er fataskápur. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð. Athygli er vakin á að fjöldi bílastæða á við húsið er 0,85 pr. íbúð. 

Leiguverð kr. 183.000 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs í ágúst 2024. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 157

Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 13.316 á mánuði.

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 12. ágúst nk.

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Færa mig á umsóknarsíðu

Laus 2ja herbergja íbúð

2ja herbergja íbúð er laus til leigu í Hraunbæ 163 í Árbæ. Laus 15. september 2024

Íbúðin er 43,3 m² og er á jarðhæð, útisvæði í vestur.

Gæludýrahald er heimilt í íbúðinni. Hámark er eitt gæludýr. Gæludýr skulu þannig haldin að ekki valdi hávaða, ónæði, óhollustu eða óþrifnaði. Leigutakar skuldbinda sig til að fara eftir Reglum um gæludýrahald hjá Bjargi íbúðafélagi, reglugerðum og reglum viðeigandi ráðuneytis, hollustuverndar og viðkomandi sveitarfélags um dýrahald. Óheimilt er að vera með hundategundir sem eru taldar hættulegar eða óæskilegar að fenginni reynslu eða mati sérfróðra aðila, s.s. dýralæknis, hundaþjálfara eða hundaeftirlitsmanna. Hér má sjá reglur um gæludýrahald í íbúðum Bjargs í heild sinni.

Leiguverð kr. 129.000 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs í ágúst 2024. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 13.526 á mánuði. Sameignileg vagna-og hjólageymsla. 

Hér má sjá myndband úr svipaðri 2ja herbergja íbúð (43,5 m²) Hraunbæ 153

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 6. ágúst 2024.

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Færa mig á umsóknarsíðu

Stúdíóíbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 0
  • Stærð íbúða: 33,2 m²
  • Fjöldi íbúða: 1

Stúdíóíbúðin í Hraunbæ er 33,2 m² og skiptist hún í alrými með eldhúsi, svefnrými og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í íbúðinni er fataskápur.

Hér má sjá myndband úr stúdíó íbúðinni í Hraunbæ 157

2ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 43,5-49,6 m²
  • Fjöldi íbúða: 28

Íbúðirnar skiptast í alrými með eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í íbúðinni er fataskápur.

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð (43,5 m²) Hraunbæ 153 (Hraunbæ 153/155)

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð (47,1 m²) Hraunbæ 155 (Hraunbæ 153/155)

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð (47,5 m²) Hraunbæ 155 (Hraunbæ 153/155)

Hér má sjá myndband úr 1-2ja herbergja íbúð (43,2 m²) Hraunbæ 159 (Hraunbæ 157/159)

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð (45 m²) Hraunbæ 157 (Hraunbæ 157/159)

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð (48,2-49,6 m²) Hraunbæ 157 ( Hraunbæ 157/159)

360°myndir úr Hraunbæ

2ja herbergja íbúð í Hraunbæ 153 í 360°

2ja herbergja íbúð í Hraunbæ 155 í 360°

 

3ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 59-70,6 m²
  • Fjöldi íbúða: 29

Þriggja herbergja íbúðirnar eru frá 59 m² (minnstu) og að 70,6 m² (stærstu), tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í hjónaherbergi er fataskápur.

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 153 (67,7 m²)  (týpa A í Hraunbæ 153/155)

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 155 (59 m²) Hraunbæ 153 (týpa B í Hraunbæ 153/155)

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 157 (67,1 og 67,3 m²) (týpa A og C í Hraunbæ 157/159)

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 157 (67,4 m²) (týpa B í Hraunbæ 157/159)

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 157 (69,7 m²) (týpa D í Hraunbæ 157/159)

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 161 (70,3 m²) (týpa C í Hraunbæ 161/163) 

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 163 (70,6 m² ) (týpa D í Hraunbæ 161/163) 

3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 153 í 360°

3ja herbergja íbúð í Hraunbæ 155 í 360°

4ra herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 83,7-85,3 m²
  • Fjöldi íbúða: 19

Fjögurra herbergja íbúðirnar í Hraunbænum eru 83,7-85,3 m², um er að ræða þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í hjónaherbergi er fataskápur.

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Hraunbæ 155 (84,2 m²) (týpa A í Hraunbæ 153/155).

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Hraunbæ 153 (85 m²) (týpa B í Hraunbæ 153/155).

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Hraunbæ 153 (84,2 m²) (týpa C í Hraunbæ 153/155).

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Hraunbæ 159 (83,7 m²) (týpa A í Hraunbæ 157/159).

4ra herbergja í Hraunbæ 153 búð í 360°

5 herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 4
  • Stærð íbúða: 100,5 & 103 m²
  • Fjöldi íbúða: 2

Fimm herbergja íbúðirnar í Hraunbænum eru tvær og eru þær 100,5 m² og 103 m². Um er að ræða fjögur svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í hjónaherbergi er fataskápur.

Hér má sjá myndband úr 5 herbergja íbúð (103 m²) Hraunbæ 153.

Hér má sjá myndband úr 5 herbergja íbúð (100,5 m²) Hraunbæ 157.

Hér má sjá 360°myndir úr 5 herbergja íbúð, Hraunbær 157

Fyrir leigutaka í Hraunbæ 153-163