
Grindavík, Víkurhóp 61
10 íbúðir í tveggja hæða húsi að Víkurhópi 61 í Grindavík. Það er HH smíði í Grindavík sem sér um framkvæmdina.
2ja -5 herbergja íbúðir. Reiknað er með að íbúðirnar verði tilbúnar 1. mars 2023. Gæludýrahald er heimilt í hluta íbúða á jarðhæðum en sækja þarf um þær íbúðir sérstaklega. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Íbúðirnar eru staðsettar í nýju hverfi í Grindavík. Stutt er í skóla og íþróttasvæði. Hér má sjá Víkurhóp á korti.
• Húsin eru einangruð að utan og klædd með viðhaldsléttri álklæðningu
• Húsin eru tvær hæðir og því er engin lyfta í húsinu.
• Frístandandi hjólageymsla er við húsið.
• Sameign er haldið í lágmarki og þar með rekstrarkostnaði húsfélags.
2ja herbergja íbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 54,1 m²
- Fjöldi íbúða: 2
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 54,1 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.
3ja herbergja íbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 70,2 m² - 70,4m²
- Fjöldi íbúða: 4
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 70,2 m² - 70,4m² . Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
360° mynd úr sambærilegri íbúð
4ra herbergja íbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 91,9 m²
- Fjöldi íbúða: 2
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 91,9 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
5 herbergja íbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 106 m²
- Fjöldi íbúða: 2
5 herbergja íbúðirnar eru 106 m². Í þeim er anddyri, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.