Fimm fjögurra herbergja íbúðir við Loðmundartanga á Flúðum (póstnúmer 845). Fyrsta skóflustunga var tekin 18. júní 2025 og áætlað að íbúðirnar verði tilbúnar til leigu í júní 2026. Áætluð verklok í júlí 2026.
Um er að ræða sérbýli með litlum garði og eru allar íbúðir með tveimur bílastæðum. Íbúðirnar eru allar 4ra herbergja (3 svefnherbergi). Gæludýrahald er heimilt í íbúðunum. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Hér má sjá staðsetningu húsanna á korti.
Upphaf leigu er 1. júlí 2026.
Um er að ræða tvær íbúðir í nýju húsi við Loðmundartanga 19-27 sem er enn í byggingu.
Íbúðirnar eru 93,4 m² og er á jarðhæð.
Íbúðirnar skiptast í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og alrými með eldhúsi. Fataskápur í hjónaherbergi en ekki eru fataskápar í öðrum herbergjum. Geymsluskápar eru í þvottahúsi og þá eru einnig skápar í anddyri.
Gæludýrahald er heimilt í íbúðunum. Hámark er eitt gæludýr. Hér má sjá reglur um gæludýrahald í íbúðum Bjargs í heild sinni.
Áætlað leiguverð er kr. 261.647 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs mánaðarlega, með grunn í apríl 2026. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Athugaðu, um er að ræða nýbyggingu og því ekki hægt að sýna íbúðina. Hér fyrir neðan sérðu myndband og 360° myndir úr svipaðri íbúð:
Hér má sjá myndband úr svipaðri 4ra herbergja (miðjuíbúð) í Langahrauni 40 (92,2 m²).
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 4ra herbergja íbúð (miðjuíbúð) í Langahrauni 40 (92,2 m²).
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 9.138.000/13.500.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.254.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.874.000 kr.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs.
Íbúðirnar eru 93,4 - 95,6 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og alrými með eldhúsi.
Fataskápur í hjónaherbergi en ekki eru fataskápar í öðrum herbergjum. Geymsluskápar eru í þvottahúsi og þá eru einnig skápar í anddyri.
-Pallur með skjólvegg á milli íbúða sem tengir skúr og hús (að framan).
-Tvö bílastæði eru á hverja íbúð.
-Við hverja íbúð er frístandandi úti hjólageymsla ásamt óupphitaðri útigeymslu.
-Lítill skjólveggur milli íbúða bak við hús.
-Baka til er innangengt í þvottahús/geymslurými.
-Húsið verður byggt með forsteyptum einingum með svartri steináferð.
-Gólfhiti verður í íbúðunum.
Myndbönd
Hér má sjá myndband úr svipaðri 4ra herbergja endaíbúð í Langahrauni 46 (93,6 m²).
Hér má sjá myndband úr svipaðri 4ra herbergja (miðjuíbúð) í Langahrauni 40 (92,2 m²).
360° myndir
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 4ra herbergja endaíbúð í Langahrauni 46 (93,6 m²).
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 4ra herbergja íbúð (miðjuíbúð) í Langahrauni 40 (92,2 m²).
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
Athugið að allar 3D myndirnar eru af sambærilegu húsi/ekki raunmyndir af húsunum á Flúðum. Húsin á Loðmundartanga á Flúðum munu vera með aðeins öðru sniði en myndirnar sýna.
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst