
Brekknaás, Árbær - NÝTT
48 leiguíbúðir eru byggðar í 5 tveggja hæða fjölbýlishúsum við Selásbraut og Brekknaás í Árbæ, Reykjavík. Fyrsta skóflustungan var tekin í nóvember 2022 og áætlað að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til leigu 1. júlí 2024. Sjá nánar hér um áætlaðar afhendingar og vinnu við umsóknir.
Gæludýrahald er heimilt í hluta íbúðanna. Félagsbústaðir eiga og leigja út hluta íbúðanna í Brekknaási.
Hér má sjá staðsetningu íbúðanna á korti.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 54,1
- Fjöldi íbúða: 20
Tveggja herbergja íbúðirnar eru allar 54,1 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr svipaðri 2ja herbergja íbúð.
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 2ja herbergja íbúð.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 70,7
- Fjöldi íbúða: 20
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 91,1
- Fjöldi íbúða: 16
5 herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 106,2
- Fjöldi íbúða: 4