Bátavogur 1-7 í Reykjavík

3ja herbergja íbúð laus til leigu í Bátavogi 5 (íbúð 412)

Upphaf leigu er 1. febrúar 2027.

Íbúðin er 66,4 m² og er á 4. hæð, efstu hæð. Svalir snúa í norð-austur. 

Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, eitt aflokað svefnherbergi og annað sem er stúkað af með rennihurð, þá er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Sérstök athygli er vakin á því að hlutfall bílastæða við húsið er 0,5 per íbúð.

Áætlað leiguverð er kr. 222.470 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs mánaðarlega, með grunn í október 2026. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Leigutaki greiðir fyrir eigin rafmagnsnotkun samkvæmt rafmagnsmæli íbúðar og sinn hluta af rekstrarkostnaði sameignar. Rekstrarkostnaður sameignar felur í sér sameiginlegan kostnað sem skiptist milli íbúða hússins og nær m.a. til hita íbúðar (í hlutfalli við stærð íbúðar), rafmagns og hita í sameign og þrifa og umhirðu sameignar (þ.m.t. garðhirðu og snjómoksturs). Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 15.432 á mánuði.

tvö aflokuð svefnherbergi og eitt sem er stúkað af með rennihurð, þar er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband íbúðinni eins og hún var í upphafi leigu (nr. 412, 66,4 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í íbúðinni í upphafi leigu (nr. 412, 66,4 m²)

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 9.138.000/13.500.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.254.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.874.000 kr.

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 12. október 2026.

Færa mig á umsóknarsíðu

Stúdíóíbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 0
  • Stærð íbúða: 27,3 og 40,9m²
  • Fjöldi íbúða: 2

Stúdíóíbúðirnar í Bátavogi eru tvær og eru 27,3 og 40,9 m². Þær skiptast í alrými með eldhúsi, svefnrými og baðherbergi. Geymslurými er í geymsluskápum í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 1 (nr. 103, 40,9 m²)

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 7 (nr. 103, 27,3 m²)

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 1 (nr. 103, 40,9 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 7 (nr. 103, 27,3 m²)

1-2ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 40,4 m²-50,6 m²
  • Fjöldi íbúða: 26

1-2ja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 40,4 - 50,6 m² og skiptast þær í alrými með eldhúsi, svefnrými (stúkað af með rennihurð) og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 1 (nr. 203, 50,6 m²).

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 1 (nr. 202, 47,3 m²).

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 1 (nr. 203, 50,6 m²).

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 1 (nr. 202, 47,3 m²).

Hér má sjá fleiri myndir og myndbönd úr 1-2ja herbergja íbúðum Bjargs við Bátavog.

2ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 47,4m² - 53,7m²
  • Fjöldi íbúða: 10

Tveggja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 47,4 - 53,7m². Í þeim er eitt svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 1 (nr. 101, 53,7 m²)

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 3 (nr. 311, 47,4 m²)

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 1 (nr. 101, 53,7 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 3 (nr. 311, 47,4 m²)

Hér má sjá fleiri myndir og myndbönd úr 2ja herbergja íbúðum Bjargs við Bátavog.

2-3ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 56,2m² - 66,4m²
  • Fjöldi íbúða: 6

2-3ja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 56,2 - 66,4m². Í þeim er eitt aflokað svefnherbergi og annað sem er stúkað af með rennihurð, þar er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 5 (nr. 412, 66,4 m²)

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 7 (nr. 101, 56,2 m²)

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 5 (nr. 412, 66,4 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 7 (nr. 101, 56,2 m²)

3ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 62,4m² - 80,3m²
  • Fjöldi íbúða: 15

Þriggja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 62,4 - 80,3m². Í þeim eru tvö svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 7 (nr. 102, 80,3 m²)

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 7 (nr. 104, 74,4 m²)

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 7 (nr. 102, 80,3 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 7 (nr. 104, 74,4 m²)

Hér má sjá fleiri myndir og myndbönd úr 3ja herbergja íbúðum Bjargs við Bátavog.

3ja-4ra herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 78,1m² - 81,8 m²
  • Fjöldi íbúða: 4

3ja - 4ra herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 78,1 - 81,8 m². Í þeim eru tvö aflokuð svefnherbergi og eitt sem er stúkað af með rennihurð, þar er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 3 (nr. 305, 78,1 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 3 (nr. 305, 78,1 m²)

4ra herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 72,7m² - 83,0m²
  • Fjöldi íbúða: 7

Fjögurra herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 72,7 - 83,0m². Í þeim eru þrjú svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Myndbönd:

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 1 (nr. 204, 72,7 m²)

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 5 (nr. 410, 77,6 m²) 

360° myndir:

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 1 (nr. 204, 72,7 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 5 (nr. 410, 77,6 m²) 

Hér má sjá fleiri myndir og myndbönd úr 4ra herbergja íbúðum Bjargs við Bátavog.

5 herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 4
  • Stærð íbúða: 97,4-97,5m²
  • Fjöldi íbúða: 4

Fimm herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 97,4 - 97,5m². Í þeim eru fjögur svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur.

Hér má sjá myndband tekið í Bátavogi 5 (nr. 413, 97,5 m²)

Hér má sjá 360° myndir teknar í Bátavogi 5 (nr. 413, 97,5 m²) 

Skipulag

Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að hafa átt sér stað á framkvæmdatíma.

Umhverfið

Um er að ræða nýtt og skemmtilegt íbúahverfi sunnan Kleppsmýrarvegar og austan Sæbrautar þar sem áður var atvinnu- og iðnaðarhverfi. Nálægð við nátturu er mikil þar sem Elliðárdalurinn er í göngufæri. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram sjávarsíðunni og upp í Elliðaárdal og niður í Fossvogsdal. Laugardalurinn er steinsnar frá og umhverfið býður upp á frábæra möguleika til útivistar. Þá er öll þjónusta innan seilingar.

Hér má sjá hugmynd arkitekta um hverfið (myndband)

Hér má sjá deiliskipulag Vogarbyggðar af vef Reykavíkurborgar

 

Fyrir leigutaka í Bátavogi