24 íbúðir við Asparskóga 3 á Akranesi.
Húsin eru á tveimur hæðum og um er að ræða 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Fyrstu íbúðirnar fóru í leigu 1. nóvember 2023. Gæludýr eru leyfð í hluta íbúðanna. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Samkomulag er við Akraneskaupstað um að þeir hafi til ráðstöfunar hluta íbúðanna í Asparskógum 3.
Hér má sjá Asparskóga 3 á Akranesi á korti.
Upphaf leigu er 15. október 2026.
Íbúðin er 70,8 m² og er á jarðhæð.
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Gæludýrahald er ekki heimilt í íbúðinni.
Áætlað leiguverð er kr. 206.884 á mánuði, tengt vísitölu neysluverðs mánaðarlega, með grunn í júní 2026. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Leigutaki greiðir fyrir eigin rafmagnsnotkun samkvæmt rafmagnsmæli íbúðar og sinn hluta af rekstrarkostnaði sameignar. Rekstrarkostnaður sameignar felur í sér sameiginlegan kostnað sem skiptist milli íbúða hússins og nær m.a. til hita íbúðar (í hlutfalli við stærð íbúðar), rafmagns og hita í sameign og þrifa og umhirðu sameignar (þ.m.t. garðhirðu og snjómoksturs). Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 7.745 á mánuði.
Hér má sjá myndband tekið úr sambærilegri íbúð í Asparskógum 3a (íbúð 104, 70,1 m²)
Hér má sjá 360° myndir tekið úr sambærilegri íbúð í Asparskógum 3a (íbúð 102, 70,1 m²)
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 9.138.000/13.500.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.254.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.874.000 kr.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 22. júní 2026.
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 70,1 - 70,8 m². Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Hér má sjá myndband tekið í Asparskógum 3a (íbúð 104, 70,1 m²)
Hér má sjá 360° myndir tekið í Asparskógum 3a (íbúð 102, 70,1 m²)
Ýmsir staðir á netinu þar sem hægt er að sækja gagnlegar upplýsingar.
Sendu okkur tölvupóst