Akranes, Asparskógar 12, 14 og 16

Opið fyrir umsóknir fyrir íbúð í Asparskógum 12

Laus til umsókna; 3ja herbergja íbúð í Asparskógum.

Áætlað leiguverð er kr. 175.172 á mánuði og er tengt vísitölu neysluverðs í apríl 2024. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.

Gæludýrahald er heimilt í íbúðinni. Hámark er eitt gæludýr. Hér má sjá reglur um gæludýrahald í íbúðum Bjargs í heild sinni.

Íbúðin er 78.2 og er á jarðhæð. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Sérafnotareitur er afgirtur með skjólvegg. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.

Upphaf leigu 15. júní 2024.

Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 10.129 á mánuði. 

Hér má sjá 3ja herbergja íbúðirnar í Asparskógum í 360°.

Hér má sjá myndband tekið í 3ja herbergja íbúð á framkvæmdartíma. 

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 23. apríl nk.

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Færa mig á umsóknarsíðu

Skipulag

Hér má sjá skipulag húsanna:

Stúdíóíbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 0
  • Stærð íbúða: 40,4 m²

Stúdíó íbúðirnar eru 40,4 m² og skiptast í alrými með eldhúskrók og baðherbergi. 4,5 m² íbúða svalir/útisvæði, geymslurými er innan íbúðar og í íbúðinni er fataskápur.

Hér má sjá stúdíó íbúðirnar í Asparskógum í 360°.

Hér má sjá myndband tekið úr íbúðinni

Tveggja herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 52,5-52,8 m²

Tveggja herbergja íbúðirnar eru 52,5-52,8 m² og skiptast í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. 4,5 m² íbúða svalir/útisvæði. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.

Hér má sjá 2ja herbergja íbúðirnar í Asparskógum í 360°.

Hér má sjá myndband tekið í 2ja herbergja íbúð í Asparskógum. 

Þriggja herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 76,9 og 78,3 m²

Þriggja herbergja íbúðirnar eru 76,9 og 78,3m². Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. 4,5 m² íbúða svalir/útisvæði. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.

Hér má sjá 3ja herbergja íbúðirnar í Asparskógum í 360°.

Hér má sjá myndband tekið í 3ja herbergja íbúð á framkvæmdartíma. 

Fjögurra herbergja íbúðir

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 92,6

Fjögurra herbergja íbúðirnar eru u.þ.b. 92,6 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. 4,5 m² íbúða svalir/útisvæði. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.

Hér má sjá 4ra herbergja íbúðirnar í Asparskógum í 360°.

Hér má sjá myndband tekið í 4ra herbergja íbúð á framkvæmdartíma. 

Fyrir leigutaka í Asparskógum