9. júní 2020

Upphaf framkvæmda við Tangabryggju í Reykjavík í samvinnu við Búseta

skoflustunga.jpg

Skóflustunga að 124 nýjum íbúðum sem Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag byggja við Tangabryggju í Bryggjuhverfi Reykjavíkur var tekin í dag kl. 13:30. Byggingarfélagið ÍSTAK mun sjá um byggingu fjölbýlishúsanna. Verkfræðistofan Ferill sá um verkfræðihönnun og arkitektahönnun var í höndum Arkþings. Félögin byggja á sameiginlegum reit en hvort með sínar áherslur, enda Bjarg leigufélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag.

Nú þegar er Bjarg með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur ólíkum stöðum, á Móavegi í Grafarvogi, Urðarbrunni í Úlfarsárdal og Asparskógum á Akranesi. Þá eru framkvæmdir við rúmlega þrjúhundruð nýjar íbúðir komnar vel á veg og rúmlega 500 íbúðir eru í undirbúningsferli. Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins eru því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.

Búseti leggur áherslu á að svara þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hjá félaginu er að finna mikla fjölbreytni í íbúðasamsetningu eftir rúmlega þrjátíu ára starfsemi. Innan samstæðu Búseta eru reknar í dag yfir 1.000 íbúðir og eru nú um 180 íbúðir í byggingu á vegum félagsins. Íbúðirnar sem Búseti byggir nú eru við Keilugranda í Vesturbæ Reykjavíkur, Árskóga í Mjódd og Tangabryggju í Bryggjuhverfinu. Búseti þjónar breiðum hópi félagsmanna með mismunandi þarfir þegar kemur að búsetuformi.

Sjá nánar hér um íbúðirnar við Tangabryggju 5.