21. maí 2025

Skóflustunga tekin að 30 íbúðum í Reykjanesbæ

20250521_140305(0).jpg

Fyrsta skóflustunga var tekin í dag að 30 leiguíbúðum í sex húsum við Trölladal 1-11 í Reykjanesbæ. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í júlí 2026, en húsin verða afhent á sex mismunandi dagsetningum. Opnað verður fyrir umsóknir í september á þessu ári.

Íbúðirnar verða tveggja til fimm herbergja og eru í sex, tveggja hæða húsum, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna á jarðhæð. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.

Verktaki: HH smíði ehf.

Sjá nánar um íbúðirnar hér

Fv: Hlynur Helgason hjá HH smíði, Guðný Birna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Ragnar Þór Ingólfsson,  Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Þorbjörn Guðmundsson.