4. júní 2025

Skóflustunga tekin að 68 leiguíbúðum við Haukahlíð 18 í Reykjavík

skóflustunga.JPG
Fv: Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkurborgar, Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ og Guðrún Kristjánsdóttir starfsmaður Bjargs.

Fyrsta skóflustunga var tekin í dag að 68 leiguíbúðum Bjargs við Haukahlíð 18 í Reykjavík. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í júlí 2027, en íbúðirnar verða afhentar á þremur mismunandi dagsetningum. Opnað verður fyrir umsóknir í september á næsta ári. Sjá frekari upplýsingar um úthlutun hér

Íbúðirnar eru í 85 íbúða fjölbýlishúsi á 3-5 hæðum með þremur stigahúsum og verða íbúðirnar tveggja til sex herbergja. Bílakjallari verður í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna á jarðhæð. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.

Verktaki: Jáverk ehf.

Sjá nánar um íbúðirnar hér