6. nóvember 2018

Bjarg íbúðafélag og IKEA í samstarf um hagkvæmar íbúðir

bjarg_samningur-2.jpg

Bjarg íbúðafélag og IKEA hafa gert samkomulag um samstarf vegna íbúða Bjargs.  Í samkomulaginu fellst að Bjarg mun leitast við að nota innréttingar IKEA í íbúðir félagsins.  IKEA mun taka þátt í hönnunarferli íbúða og útfæra innréttingarnar með það að markmiði að ná fram hámarksnýtingu rýma.

Áhersla Bjargs er veita leigutökum öruggt húsnæði til langs tíma, því er mikilvægt að leigutakar geti aðlagað íbúðir að sínum þörfum.  Með samstarfinu geta leigutakar aðlagað íbúðir með lausnum frá IKEA eftir að þeir eru fluttir inn. Sérstakur IKEA bæklingur vegna íbúða Bjargs verður útbúinn samhliða hönnun þeirra.   

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs.  “Bjarg leitar allra leiða til að framleiða hagkvæmar íbúðir og þjónusta leigutaka á sem bestan hátt. Samstarf við IKEA uppfyllir bæði þessi markmið.  Að gefa leigutökum tækifæri að aðlaga íbúðir að sínum þörfum með aðgengi að lausnum á viðráðanlegu verði er nýjung á leigumarkaði og hlökkum við til samstarfsins við IKEA.”

Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA. “Við hjá IKEA erum stolt af því að fá að taka þátt í þessu krefjandi verkefni með Bjargi. IKEA hefur um árabil verið leiðandi í hönnun á innréttingum þar sem áhersla er lögð á að nýta takmarkað pláss sem best og á sem hagkvæmustu verði.”