27. apríl 2018

Bjarg íbúðafélag hefur byggingu á 83 leiguíbúðum í Urðarbrunni, Úlfarsárdal í Reykjavík

Urðarbrunnur_3D_5

Skóflustunga að 83 nýjum leiguíbúðum við Urðarbrunn 130-132 í Úlfarsárdal, Reykjavík sem Bjarg íbúðafélag byggir var tekin 27. apríl kl. 15:00.
Hér er um að ræða annað verkefni Bjargs en skóflustungan að fyrsta íbúðakjarna félagsins var tekin 23. febrúar sl. við Móaveg í Reykjavík. Framkvæmdir við Móaveg eru komnar vel á veg en þar munu 155 íbúðir rísa. Þá áformar félagið umfangsmiklar framkvæmdir á næstu misserum en reiknað er með að um 450 íbúðir verði komnar í byggingu hjá félaginu í lok þessa árs og rúmlega 1.000 til viðbótar á næstu þremur til fjórum árum. Íbúðir í fyrsta áfanga verða meðal annars í Reykjavík, á Akranesi, Akureyri, Þorlákshöfn og Sandgerði. Þá á félagið í viðræðum við sveitafélög víðar á landinu.

Stefnt er á að næstu byggingarframkvæmdir félagsins, hefjist í haust við Hallgerðargötu við Kirkjusand í Reykjavík en þar verða byggðar 80 íbúðir. Þá er hafin forhönnun 33 íbúða sem rísa munu á Akranesi. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar í Reykjavík verði afhentar í júní 2019.

Byggingarfélagið Eykt mun sjá um byggingu fjölbýlishúsanna við Urðarbrunn, Verkfræðistofan Mannvit sér um verkfræðihönnun og arkitekt er THG arkitektar.
Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins verða því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.
Verið er að ganga frá undirbúningi vegna skráningar á biðlista vegna íbúðanna, á heimasíðu Bjargs á slóðinni bjargibudafelag.is.