14. maí 2018

Bjarg íbúðafélag fær úthutað lóð fyrir byggingu 100 íbúða í Skerjafirði

bjarg_skerjafjordur large

Í dag var undirritað samkomulag þar sem Reykjavíkurborg veitir Bjargi íbúðafélagi lóðavilyrði fyrir lóð í Skerjafirði sem heimilar byggingu 100 íbúða. Skipulagssamkeppni var haldin um skipulag í Skerjafirði og er verið að vinna að rammaskipulagstillögu á grundvelli niðurstöðu samkeppninnar.